Loksins búin með prófin
og orðin löggiltur tamningamaður, er helvíti sátt við
einkunnirnar stóð mig með stökustu
prýði, kellan að berjast um toppinn........ ég og
Þórdís vöknuðum eldsnemma á laugardagsmorgun og
brunuðum allaleið norður í Skagafjörð í útskriftina
sem var bara gaman. 3árið var einnig að útskrifast svo
að það var að vonum tekið vel á því um kvöldið og fagnað,
held ég hafi losnað við 100kg daginn sem að ég kláraði prófið
engin smá léttir, þið kannist við þetta elskurnar
mínar
En ég hef ákveðið að halda áfram á Hvoli, helvíti fínt að
vera hérna í sveitinni, held ég sé bara farin að kunna betur
við Selfoss heldur en sjálfa Reykjavík....elsa ég hlakka til að sjá
myndirnar af þér frá stúdentinum í þessum búning, get ekki ýmindað
mér hvernig þig í búningnum.
jæja er komin
með verk í hausinn vegna of mikillar notkunar,
hvað á maður að gera í haust??? ég stend á gati get bara
ekki ákveðið mig, finnst ég vera að taka erfiðustu ákvörðun sem ég
hef nokkurn tíman tekið, er hestamennskan málið eða er
það HR í haust? Erna mín ertu með mér í HR??